Jæja er nú ekki komin tími á að hafa einhverjar fréttir hér inná. Ég hef er búin að vera hræðinleg með það að blogga á þessari síðu en nú mun ég veða duglegri. Allavegana að reyna það.
En núna á ég 4 naggrísi, yndisleg krútt.
Ég á Mána og Mánadís en þau áttu 3 unga eins og kom fram áður og stelpurnar 2 fengu nýtt heimili hjá frábærum stelpum og heita núna Rönd og Tása.
En ég hélt eftir honum Simba eins og hann heitir en hann er ofboðslega flottur, brúnn eins og mamma sín og loðinn rósettu kall. Hann er frekar hlédrægur en algjört krútt, kem með myndir við fyrsta tækifæri.
Síðan á ég hana Nölu sem ég keypti um páskana í Dýragarðinum sem er búð í Síðumúlanum. Hún Nala er held ég bara mesti karakter sem ég veit um, hún blaðrar útí eitt og er ekkert smá hávær, hún er einnig mjög gæf og skemmtileg. Og ekki skemmir liturinn hún er alveg hvít fyir utan hausinn sem er hálfur ljósbrúnn og hinn helmingurinn dökkbrúnn og svo er hún loðinn. Hún er bara falleg, hún var ungafull eftir hann Simba en þeir ungar dóu og þurfti greyið Nala að ganga í gegnum mikið þar sem ég kom að henni með unga dauðann aftaní henni eða bara hausinn var kominn út en ég tók hann út í samráði við dýralæknir og þá kom að biðinni miklu þar sem ég var mjög stressuð en dýralæknirinn vildi bíða og sjá hvað gerðist, hélt kanski að það væru ekki fleiri ungar í henni sem ég var nú nokkuð viss um en þeir létu nú ekki bóla á sér, síðan fór ég með hana til dýra og hún var með hana yfir nótt og náði með sprautu 2 ungum í viðbót út sem voru auðvitað dauðir. En ég er mjög ánægð með það að hún Nala hefur náð sér að fullu og er aftur farinn að kalla á mann.
En síðan á ég von á öðru goti frá Mánadís og Mána en hún fékk góða hvíld á milli eða um hálft ár. Ég held samt að það séu um 2 vikur í unga frá henni hún er ekki orðin svo stór. Spennandi að sjá hvað kemur.
Ein mynd til gamans.... ekki mínir naggar